Aðalvalmynd

Teljari

Auglýsing

Rækju krækjur

Engla tenglar

ýmislegt sniðugt

Áhugavert

Leit

Gleðilegt árið og þakkir fyrir það gamla og gömlu!Tóta stína stuð

Gleðilegt nýtt ár allir saman og takk fyrir allt gamalt og gott.

Við familían litla erum búin að eiga yndisleg jól saman og okkur líður vel svona fyrir utan ofát. Vorum hér þrjú saman um jólin og það var voða notarlegt og við vorum mjög ánægð með það öll þrjú. Borðuðum mikið og alla daga milli jóla og nýárs. Svo í gær kom svo að því að maður þurfti að kveðja 2008 sem var ekkert svo slæmt... þar stóð aðallega upp úr að ég varð ólétt á árinu, kannski ekkert óléttari en vanalega en allvega með barni og hmmm man ekki eftir neinu þegar ég hugsa til baka, kreppa hvað er það... það hefur alltaf verið kreppa hjá okkur og það er bara eins.
Mamma, pabbi, Jói bró og Doddi bró voru hér hjá okkur jú og Svenni líka. Mamma og pabbi hafa alltaf verið hjá okkur um áramót eftir að við fluttum til akureyrar og það er bara skemmtileg hefð!! Alltaf rosa stuð og mikið borðað, stundum eru þau líka fínar barnfóstrur svona á nýársnótt en ekki þessi áramótin því nú gat mín nú bara ekki djammað svo mikið þannig að ég fór að sofa kl eitt með drengnum mínum. Pabbi og maggi og mamma gláptu hér á TV fram eftir nóttu!!

nýárskveðja þórey

Hvað er að blogga?Tóta stína stuð

Hver á þessa síðu og hví gerist ekkert hér? hmmmm skrýtið!! æji er ekki með hugann við þetta núna, ég hugsa aðallega til jólanna núna og auðvitað að það sé lítill gullmoli á leiðinni!!

bara Gleðileg jól ef ég verð ekki búin að blogga fyrir það!!

snemma dags!!Tóta stína stuð

já ég svaf til átta sem er bara fínt á þessum bæ!

Jólaandinn er að hellast yrir mig... ég finn bara hvað jólaskapið svífur inn í huga minn. Vantar bara pínu stuff þá er ég tilbúin að gera jólakortin. Kannski klára að að ná mér í það sem  mig vantar og byrja á þeim í kvöld!!!!

Mig dreymdi meira að segja að fólk væri farið að hengja upp jólaseríur heheh en það er kannski full snemmt!!

Föst á Dalvík!!Tóta stína stuð

Þannig er nú mál með vext hehe eða sko jámm mín ætlaði til óló í gær að hitta maggann sinn en svo hringdi hann og sagði að það væri ekkert ráðlegt að leggja af stað þannig að við bara fórum rúmlega að húsasmiðjunni og sáum að það var satt þannig að við höfðum það bara gott í gærkveldi.  Svo í morgun lögðum við af stað um hálf ellefu og enduðum á Dalvík hjá Hildi og krökkunum. Ég náði nú að festa mig þar, ég sá ekkert og það var fúlasta veður, var á bílnum hans Jóa bróðir. Reyndar er bíllinn búinn að standa sig eins og hetja í dag í sköflum og snjó. Svo hringdum við í vegagerðina og það var sagt að það væri í góðu að fara á milli óló og dalvíkur en svo þegar ég og alli fórum þá hafði farið sennilega fjórða snjóflóðið og lentu bílar undir, við komum þarna að þessu en þurftum að snúa við og fara til Dalvíkur aftur. Svo við höfum það bara gott hér hjá Hildi og kó. Ætlum að gera pizzu og keyptum nammi. Alli var reyndar ekkert sáttur við þetta því að honum langaði til óló að hitta pabba sinn og fleiri.

jæja nóg að gerast!!!
best að hjálpa frúnni með pizzuna!!

Góður dagurTóta stína stuð

jább góður laugardagur í dag. Þessi helgi var langþráð eftir erfiða og leiðinlega vinnuviku. Yndælis vinkona mín kom hér í dag um hádegi og bauð mér með sér í göngutúr og ég skrapp í kuldanum í heilsueflingar göngutúr í dag, það var reyndar mjög gott þó svo að ég hafi ekki farið út að labba síðan ég veit ekki hvunær. Fattaði svo að ég var nú ekki eins létt og síðast þegar ég fór að labba. Ég labba nú ekki mikið, finnst betra að fara í sunda og synda mikið. Ætla reyna að fara í sund núna alla morgna áður en litla beibíið kemur.

Svo skelltum við Jóhanna Sif okkur í bíó með Taníu og Aðalstein. Sáum hérann og skjaldbökuna hehe bara fínt sko. Alltaf gaman að skella sér í bíó á barnamynd.

jæja ætla svo að fara að skella inn bumbumynd á síðuna hans Aðalsteins. Gunnhildur bíður allavega spennt eftir því tí hí!!

Óléttan farin að segja til sín!Tóta stína stuð

Já verð nú að segja að bumban stækkar hratt þessa dagana og á örugglega eftir að stækka hratt þennan stutta tíma sem eftir er. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og mér finnst ég nýfarin að segja fólki frá því að ég sé með kríli í bumbunni. ÉG er að byrja verða þreytt eftir vinnu og svona farin að finna vel fyrir þessu, þessi ólétta er nú mjög ólétt þeirri fyrstu. Núna er ég miklu stirðari og þreyttari en síðast var ég svo fersk allann tímann, kannski af því að ég fór í sund á hverjum degi þá og var að synda uþb kílómeter á dag. Verð kannski að fara að skellamér í sund á hverjum degi bara og gá hvort ég frískist ekki við það. Var reyndar bara að vinna 50 % vinnu á þessum tíma á síðustu meðgöngu.

jæja annars er bara allt það fínasta að frétta sko og mest lítið! Tengdapabbi kom í kveld og eldaði saltfisk, rófustöppu og kartöflur hér mhhhhhhhhhh þetta var sjúklega gott eins og oftast þegar maður borðar saltfisk og rófur. Vantaði bara rúgbrauðið með jammmmí!!

þetta árið er tími til kominn að skera niður jólagjafir, maður er að gefa allt of mörgum. Kötta á það núna!! Skemmtilegast að leyfa börnunum að gefa sín á milli. Ég hef nú alltaf reynt að gefa ekkert dýrt... enda finnst manni hugurinn bak við skipta máli. En það skemmtilegasta við jólin eru jólakortin og það er farið að styttast í að ég fari að vinna í þeim málum.

Fólk farið að kvarta undan bloggleysi hjá manniTóta stína stuð

Hér kemur blogg handa þér litla gellu frænka og fyrir alla sem hafa áhuga!

Jább margt gerist og breytist a stuttum tíma. Eða allavega ég og bumban tí hí!! Alli orðinn þriggja ára gaurinn og við héldum ægilega góða afmæisveislu fyrir hann og komu fullt af góðu fólki. Hann fékk fullt af fallegum gjöfum og knúsum og kossum.

haldiði að mín hafi ekki bara farið að gefa öndunum í morgun með syninum og svo skellt sér í sund með hann á eftir. Rosa gaman að fara í sund með hann, hann er reyndar pínu vatnhræddur og hefur bara viljað fara í sund í sveitinni en svo gerðist hann hugrakkur í morgun og það var æði nema ég held að við höfum ekki stoppað nema í svona mínútu í senn á hverjum stað heheh vorum alltaf að fara eitthvað á milli. Svo gerðist hann svaka hetja og fór meira að segja í gulu stóru rennibrautina, hljóp bara upp sjálfur og ég tók á móti honum niðri.... ólétta konan þorir ekki að renna sér hehe!!
Svo var haldið heim á leið og borðað og svo var aðeins búðast og svo skelltum við okkur með drenginn í bíó á grísina þrjá sem var að mínu mati hrikalega leiðinleg mynd en slapp kannski alveg. Vildum bara gera eitthvað fyrir hann svona saman þar sem það hefur ekki gerst lengi. Núna eru feðgar bara í Wii tölvunni og ég var að enda við að skúra gólfið.

já háts þetta er sko æðisleg helgi og bara rétt að byrja maður!!

stei hress

AfmæliTóta stína stuð

Jæja á morgun eru þrjú ár síðan sonur okkar fæddist. Ég man sko vel eftir þeim degi, eða þá sérlega vel eftir nóttunni á undan og bara stundinni þegar han var að fæðast. Yndisleg og æðisleg minning. Man einnig vel eftir deginum fyrir þennan dag... þegar ég fór í réttir í sveitinni til að elta rollur hehe og vippa mér upp í land rover eins og ég væri aðeins 20 kíló... fattaði svo skyndilega að ég væri ólétt þegar ég fékk í bakið hehe gaman að vera svona vitlaus.
Svo er bara farið að styttast í næsta kríli... gaman af  þessu. Alltaf gaman að fjölga sér.

Síðustu dagar einknnast af þreytu, nýja vinnan er ansi krefjandi fyrir lappir og bak.

Brosandi

Gleði gleði gleðiTóta stína stuð

Hver hefur ekki heyrt mig syngja gleði gleði gleði þegar ég er glöð og hress og kát eins og ég er núna. Brosandi

VaglaskógurTóta stína stuð

Síðustu helgi fór ég í vaglaskóg með þrem góðvinkonum mínum. Það var sko haldið upp á afmæli, étið bæði kjet og smjér, nammi og bjór og margt margt fleira. Löbbuðum um og röbbuðum um margt og mikið. Vorum bara fjórar saman sem gistum og það var ægilega notó. Pínu kalt fyrir nokkra sem áttu ekki svona magnaða hita dýnu eins og mamma lánaði mér heheh svo vorum við líka með gashitara sem pabbi lánaði okkur. Vorum í tjaldvagninum sem  ma og pa eiga. Takk fyrir þessa frábæru helgi stelpur... þetta gat varla verið betra!


Nú er ég byrjuð að vinna í eldhúsi og finnst það rosa fínt, búin að kinnast nýrri konu sem mun vinna með mér uhh allavega eins lengi og ég mun vinna, annars stækkar bumban mjög hratt þessa dagana.
Glottandi


Síða 1 af 21

Klukkan

Könnun

Á að strengja sér áramótaheit?

Gagnasafn